ŢriđjiDesemberTvöŢúsundOgSjö
ŢrettándiOktóberTvöŢúsundOgSjö
ŢrítugastiÁgústTvöŢúsundOgSjö
NítjándiJúlíTvöŢúsundOgSjö
Það er langt liðið á sumarið og ég er svona næstum því farin að undirbúa mig í að byrja aftur á síðasta árinu mínu í menntaskóla. Vó...
En þó hef ég 24 daga til stefnu og ætti ég að geta gert marga skemmtilega hluti á þessum 24 dögum. Ég mun segja skilið við subway líklegast fyrir fullt og allt á morgun. Það verður eflaust tilfinningarík vakt og mun ég setja þjófavarnarkerfið á með trega og ekkasogum. En lífið heldur áfram. Leið mín liggur svo í ferðalag um landið. Þar sem ég hef hugsað mér að hafa hina ýmsu viðkomustaði svo sem vestfirði (í fyrsta sinn) suðurlandsundirlendið (ekki í fyrsta sinn) svo vona ég að austfirðir fái að njóta nærveru minnar um einhvert skeið áður en þessir 24 dagar eru allir.
Ég held í alvöru að þetta sé ekki svo langt frá því að geta gerst. Svo 13. ágúst mun ég arka á ný inn í skólann minn með tilhlökkun í hjarta og spennt að takast á við verkefni vetursins. :) Líklegt að verkefnin verði spennandi en enginn er að neyða mig til að vera í þessum skóla þannig að ef ég væri ekki bara oggulítið spennt þá væri ég ekki á réttum stað.
Margrét
TuttugastiOgFimmtiJúníTvöŢúsundOgSjö
d[(-_-)]b = Turn it up-Robots in disguise
Hér kemur fyrsta blogg sumarfrísins. Ég ákvað að blogga þó að ég hafi ekkert að segja J Það er bar alltaf svo geðveikt gaman að vera komin í sumarfrí . Ég elska sumarið J Það er líka orðið svo heitt og búið að vera það síðustu daga.
Allt gekk að óskum í einkunum þrátt fyrir minniháttar vandamál í fyrstu ;)
Í sumar tekur við vinnan mín og ég stefni á að verða milljónamæringur eftir sumarið J allavega næstum því.
Fyrstu dagana í sumarfríinu fylltist ég ákveðnu vonleysi því ég hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að nota þessa tvo mánuði í. Ég verð eiginlega bara að vinna á kvöldin en vinir mínir vinna örugglega á daginn. Hversu leiðinlegt er það? Ég er fullviss um að eftir sumarfríið verði ég farin að hlakka mikið til að byrja aftur í skólanum.
Ég vil ekki hafa þetta blogg mikið lengra því það nennir enginn að lesa mjög löng blogg J
Að lokum vil ég óska Jónu til hamingju með bílprófið (ég er ekki viss um að mæspeis kommentið hafi virkað hjá mér svo þetta er öruggari leið) og Oddrúnu góðrar ferðar til Noregs J Ég gæti örugglega haldið áfram að telja upp fullt af nöfnum en til allra hinna vil ég óska ykkur góðs sumars.
Sumarkveðja Margrét Lív
SjöttiJúníTvöŢúsundOgSjö
d[(-_-)]b = Makes me wonder-Maroon 5
Ok það er greinilegt að Ingó veit í hvaða landi Bratislava en hann hefur kannski misskilið keppnina. Þetta snýst ekki um hver getur sagt mér oftast í hvaða Landi hún er heldur fyrstur kemur fyrstur fær. Hann hefur kannski haldið að hann fengi 100 kall fyrir hverja athugasemd en nei Ingó hundrað kall er feiki nóg í Slóvakíu. (Þetta eru engir fordómar gegn Slóvökum þeir eru áreiðanlega ágætt* fólk, ég þekki bara engan svoleiðis) Ég hlakka mjög til ferðarinnar því ég hef ákveðið að skella mér með honum Ingólfi.
En snúum okkur að efninu, þetta var allt planað fyrir fram og samið þannig að ég get ekki látið það fara til spillis. Mér finnst reyndar eins og ég sé bara að blogga fyrir sjálfa mig, Ingólf og Oddrúnu af og til. Það er frekar fátæklegur aðdáendahópur L en þó stærri en aðdáendahópur Geirs Ólafs.
Sumarblogg?
Já á dagatalinu er svo sannarlega komið sumar, meira að segja fyrir dálítið löngu síðan en það er engan vegin komið sumar í mínu litla kalda hjarta. Ég er enn í skólanum og fyrir fáeinum dögum dró ég fram lopapeysuna.
Reyndar eru lopapeysur tengdar við íslensk sumur. Þessi tiltekna lopapeysa sem ég dró fram var keypt fyrir mörgum, mörgum árum þegar móðir mín króknaði næstum úr kulda í útilegu, auðvitað um sumar og hvar annarsstaðar en á Íslandi?
Ísland og Íslendingar eru dálítið öðruvísi en aðrar þjóðir. (Ég veit að allir eru alltaf að segja þetta en ég kemst bara betur og betur að þessu sjálf)
Hér flykkist fólk í ferðalög um vort fagra fósturland með jeppann stútfullan af farangri fyrir aðeins 5 daga. Hvar annarsstaðar en á Íslandi væri tékklistinn á þessa leið?
Gönguskór
Stígvél
Sandalar
Sokkar
Ullarsokkar
Síðbuxur
Stuttbuxur
Snjóbuxur
Pollabuxur
Föðurland (ullargammosíur)
Hlýrabolur
Stuttermabolur
Síðermabolur
Ullarbolur
Létt peysa
Flíspeysa
Ullarpeysa
Léttur jakki (vindúlpa)
Regnúlpa
Úlpa
Kraftgalli
Húfur
Vettlingar
Treflar
Sundót
Sólarolía
Pening til að fara út að borða ef grillið fýkur
Svona er sumarið á Íslandi:
Tjöld, Grillhlífar og heilu grillin fjúka
Snjór finnst á tjaldinu
Allt fer á flot
Sólbruni
Yndislegt
Hverjir aðrir en Íslendingar myndu láta bjóða sér þetta hvert einasta sumar í staðinn fyrir að halda sig bara heima í loðbrókinni,undir dúnsænginni, fyrir framan arininn sötrandi heitt kakó? (Það er bara svo vetrarlegt)
Margrét Lív
p.s. Er einhver ekki að fíla litadýrðina í blogginu mínu. Mér finnst hún OF kúl
*ágætt er betra en mjög gott J
ŢriđjiJúníTvöŢúsundOgSjö
d[(-_-)]b =Ruby-Kaiser Chiefs
Mig langaði að koma með blogg J
Ég hef ákveðið að pimpa síðuna svona dálítið ég er komin í svo mikið sumarskap og Þá fær allt vetrarlegt að fjúka J
Verst að ég kann ekki að breyta tenglunum og gera nýjar síður eð fróðleik og svona en það hlýtur að rifjast upp fyrir mér einhverntímann. Reyndar finnst mér útlitið á síðunni frekar sumarlegt svo það fær að halda sér. En ég ætla að brydda á þeirri nýjung J (Flott orðanotkun hjá mér) að setja inn það sem ég er að hlusta á ef ég er að hlusta á eitthvað og kannski fær eitthvað fleira að líta dagsins ljós.
Ég er alveg til í uppástungur að nýjungum.
Sumar fríið er alveg á næsta leyti en áður en ég fæ að njóta þess Þarf ég að mæta í þó nokkuð mörg próf L Ég Held að þau séu 7 kannski fleiri eða færri ég er engan veginn með allt á hreinu í sambandi við skólann. Sumir eru ógeðslega mikið inni í öllum málum en ég fylgi bara meira straumnum og hef ekki fyrir því að afla mér upplýsinga því það er alltaf einhver sem minnir mann á það J
Ég hef ákveðið að hætta á Subway 1. Júlí sem er kannski pínu spes tími til að hætta að vinna en þegar sálarniðurbrot er stundað af eins miklum mæli og þar, þá er held ég spurning um að henda fjármálunum til hliðar og hugsa um sjálfan sig.
Þetta er kannski ekki svo gott ef maður ætlar til útlanda en maður skellir sér bara til landsins sem Bratislava er í og býr í forsetasvítunni á 20 krónum J (Með mat innifalið) Þeir voru ekkert að ýkja í Eurotrip? er það? Ég er alveg handviss um að sú mynd sé byggð algjörlega á staðreyndum.
Morgunblaðsdreifingin er algjörlega að gera sig. Það tekur mig svona klukkutíma að dreifa blöðunum á virkudögum og laugardagsmorgnum en tæplega hálftíma að dreifa sunnudagsblaðinu. Það eru líka bara 14 blöð þá. Svo tek ég reyndar að mér aðeins stærra hverfi í júní þar sem ég dreifi í kring um 100 blöðum (moggum og blöðum til samans) Þetta er OF áhugavert bloggefni ekki satt.
Ég ætla að hætta því ég fæ svo mikið samviskubit að vera ekki að læra fyrir Egils sögu prófið sem er á morgun. Ég kvíði mikið fyrir einkuninni.
Margrét Lív
p.s. sá sem getur sagt mér í hvaða landi Bratislava er fær 100 kall til að fara þangað
(ferðin innifelur flug, gistingu (í forsetasvítunni), mat, dagpeninga og 6 miða á leiksýningar)
ŢrítugastiMaíTvöŢúsundOgSjö
TuttugastiMaíTvöţúsundOgSjö
SextándiMaíTvöŢúsundOgSjö
Mér leist svo vel á síðasta blogg að ég ákvað að endurtaka leikinn og nú með nokkrum ljóskubröndurum. Sumir eru kannski doldið brutal en þeir eiga það allir sameiginlegt að vera alveg ágætir.
-Hvað sagði ljóskan þegar hún sá bananahýði á gangstéttinni
-Æ nú dett ég aftur
-Afhverju eru ljóskubrandarar svona stuttir
-Svo karlmenn skilji þá
-Afhverju eru Austurlandabúar svona gáfaðir
-Engar ljóskur
-Ljóskan var að vinna á skrifstofu og klúðraði öllu dag einn kom vinnuveitandinn og sagði hvað er eiginlega að þér ertu með heilann í klofinu. Næsta dag þá kom ljóskan ekki í vinnuna og vinnuveitandinn hringdi í hana bálreiður og spurði hana af hverju hún væri ekki í vinnunni. Þá sagði ljóskan: „Ég fékk heilablóðfall“.
Ég held þetta sé komið nóg af fyndni núna en kannski ég finni upp á einhverju nýju og skemmtilegu fyrir næsta blogg.
Margrét Lív